Friday, 2 December 2011

Cupcake æfing á Burgemeester

Þann 17.september síðastliðinn fór fram cupcakes æfing á Burgemeester. Tilefnið var 8 ára afmæli hjá Krissý litlu. Við gerðum  vanillu cupcakes með súkkulaði bitum, svo skreyttum við þær með gulu, bleiku, bláu, og fjólubláu smjör/vanillukremi.
Hér er afraksturinn
Klárar í ofninn

Litríkar

Rósirnar


















xox
Emmý

Daníel Árni

Þetta er hann Daníel Árni, minnsti og fallegasti frændi minn. 
Hann var pollrólegur á meðan að ég myndaði hann í u.þ.b. einn og hálfann klukkutíma, pósaði bara og svaf. Ég bið ekki um meira


fallegastur






Daníel Árni með smá props

xox
Emmý

Melónu boozt

Boozt fyrir tvo, mjög sumarlegur og ferskur.
Þar sem að það er föstudagur í dag væri ekki vitlaust að henda einu vodka skoti útí, örugglega fínasti kokteill.
Bleikur fyrir spínat. Myglu grænn eftir spínat

xox
Emmý

Thursday, 1 December 2011

Gamli vitinn

Nokkrar myndir af vitunum á Akranesi

Þessa tók ég 12.12.10

Vitarnir að sumri til

Vitarnir að vetri til

Gamli vitinn 08.08.2011

xox
Ein með heimþrá

Haustmyndir

Við Demi fórum í mynda göngutúr útí skóg um daginn, mér til mikillar ánægju þá er Demi alltaf klár í að pósa fyrir mig... þreytt, svöng, kvefuð eða pirruð. Hún lætur svoleiðis smámuni ekki á sig fá og pósar eins og herforingi 

            Demilicious


Ein tekin af brúnni á Burgemeester


Ég held þær gerist ekki krúttlegri

Svo kom bestasta frænka okkar hún Rósa Kristín í heimsókn og þá fórum við náttúrulega aftur útí skóg í frænku myndatöku. 


Skytturnar þrjár


Fallegasta Rósin


Róló samtal


Sætar í haustlitum

Hér er svo ein sem aðstoðamaður minn (Bjarki) tók af ljósmyndalessunni og módelunum

xox
Emmý


Bestu bollakökurnar

Ég held að ég geti fullyrt að þetta eru bestu bolla kökur sem ég hef gert.. Þetta eru kókos bollakökur með bláberja marengs smjörkremi. 
Kremið var flóknara að búa til heldur en venjulegt smjörkrem en vel þess virði. 



Í kökurnar fór eftirfarandi:

250 gr sykur
150 gr smjör
2 egg
250 gr hveiti
1/2 tsk lyftiduft
70 ml kókosmjólk
2 tsk vanilludropar

Hræri sykur og smjör vel saman. Bæti svo við einu eggi í einu og hrærir aðeins á milli. Svo er það hveitið, lyftiduftið, vanillydroparnir, og kókosmjólkin... 
Þetta fór svo í 175° heitann ofn í sirca korter.

Svo er það besta krem sem ég hef smakkað...
Byrjaði á því að búa til bláberja mauk. 
2 bollar bláber
2 msk sykur
Sett í blandara, eftir smá stund verður þetta eins og sósa. Sett inní ískáp í klukkustund.

Hér er svo aðferðin við að búa til kremið:

1. Þeyti saman 4 eggjahvítur og 100 gr af sykri yfir vatnsbaði þangað til að þetta verður froðukennt eða þar til að sykurinn hefur bráðnað

2. Tek skálina af hitanum og þeyti á fullum hraða í 5 mínútur, þá ætti blandan að hafa kólnað aðeins

3. Bæti við 250 gr af smjöri. (sker það fyrst í bita og bæti þessu við í hollum) Þeyta saman á miklum hraða í nokkrar mínútur (þetta lítur ekkert alltof vel út í fyrsta en ef þú heldur áfram að þeyta þá breytist þetta í gúrme krem)

4. Þegar að kremið er orðið þétt þá bæti ég við bláberja maukinu og hræri í smá stund






Enjoy

xox
Emmý

Heimþrá

Nú bilast ég úr heimþrá... er búin að fylgjast með webcam inu frá Akranesi, Reykjavíkurtjörn og bláa lóninu. Ég væri alveg til í að fara í kjötsúpu uppí jörundarholt akkúrat núna, en ef að þið vitið ekki hvað þið eigið að borða í kvöld þá mæli ég að sjálfsögðu með kjötsúpu, ef þið hafið ekki tímann þá er þetta mjög gott og fljótlegt pasta.



Sýð spelt pasta
sýð gulrætur, blómkál og brokkolí
steiki hvítlauk, og rauðlauk uppúr olíu pönnu, bæti svo við einni dós af túnfisk og steiki í smá stund
Þegar að pastað og grænmetið er klárt set ég þetta allt saman á pönnuna og blanda öllu saman.
Að lokum sker ég niður kirsuberjatómata og set þá útá ásamt ferskum parmesan osti.



og ef þig langar í desert þá finnst mér persónulegra ekkert betra en súkkulaðihjúpuð jarðaber.



svo læt ég fylgja með eina mynd af skaganum sem ég tók jólin 2010.. ekkert sérlega jólalegt svosem


xox
Emmý