Showing posts with label salat. Show all posts
Showing posts with label salat. Show all posts

Friday, 15 July 2016

Núðlusalat með grilluðum tígrisrækjum

Sumarlegt og ákaflega einfalt salat fyrir tvo.

Þú þarft:



Marinering/sósa

1 dl olía
2 msk sweet chili sósa
2 tsk red curry paste
3 msk soya sósa
2 msk hunang

Aðferð: Öllu hrært vel saman og blöndunni skipt til helminga í skál og í pott, rækjur settar í skálina og látnar marinerast í amk 30 mín (gott að hafa yfir nótt inni í ísskáp) restin fer í lítinn pott, bætt við 1 msk af hunangi og 2 msk kókosmjólk. Sósan látin malla við vægan hita í 5 mín og pipruð eftir smekk, látin kólna og borin fram með salatinu.



Rækjur eru þræddar á grillspjót (muna að bleyta spjótin vel) og grillaðar á háum hita, sirca 1,5 mínúta á hvorri hlið en það fer eftir stærð rækjunar.





Núðlur eru þurrsteiktar á pönnu og restin af hráefnunum skorin eftir smekk. Svo er bara að setja þetta á fallegan disk og njóta!


Wednesday, 8 January 2014

Granateplasalat- uppskrift

Held það sé tilvalið að blogga um uppskriftina sem birtist í mogganum sl. sunnudag. Ef þig vantar hugmynd af ferskum kvöldverði þá mæli ég með þessu, tekur enga stund og mér fannst þetta æði. Uppskriftin er fyrir 3-4.


Innkaupalistinn fyrir þessa uppskrift er svohljóðandi:
Chilli
Hvítlaukur
Engiferrót
Sítróna
Avókadó
Kál (150 gr, ég nota allt nema iceberg)
Perur
Olía
Dijon sinnep
Hunang
Hvítvínsedik
Granatepli
Möndlur
Parmesan ostur
Kjúklingabringur

1.Það er best að byrja á marineringunni fyrir 2 kjúklingabringur. Í hana fer:

  • 1/2 chilli, ég notaði fræin og mér fannst það passlega sterkt, ef þeim er sleppt verður rétturinn mildari.
  • 1 hvítlauksrif
  • 2 cm engiferrót
  • 1 msk olía

Þetta er allt sett í matvinnsluvél og maukað, kjúklingurinn er  skorinn í strimla eða teninga og látinn standa inní ísskáp í 2 tíma (má vera lengur, mjög gott ef þetta er gert kvöldið áður).

2. Næst á dagskrá er dressingin, í hana fer:

  • 1 lítið hvítlauksrif (mér finnst ekki gott að hafa of mikið hvítlauksbragð og því notaði ég lítið rif, ef þið eruð mikið fyrir hvítlaukinn, eða eruð kvefuð þá má alveg setja meira)
  • 1 til 2 tsk hunang (gott að smakka sig til)
  • 1 msk hvítvínsedik
  • 5 msk ólífuolía
  • 1/2 tsk dijon sinnep
  • 1 msk ferskur sítrónusafi
  • salt og pipar eftir smekk


Þetta er hrært saman og látið vera inní ísskáp þar til salatið er borið fram.

3. Þá eru perurnar afhýddar og soðnar í sirca 20 mínútur með 4 cm engiferbút, þá eru þær látnar kólna, kjarnhreinsaðar og skornar í sneiðar.

4. Næst eru það möndlurnar, ég notaði möndlur með hýði og ristaði þær á pönnu þar til að ég fann góða möndlulykt. þá skar ég þær gróft niður og hafði þær til hliðar þar til ég raðaði upp salatinu.

5. Þá er kjúklingurinn steiktur á pönnu uppúr smá olíu og látinn kólna aðeins.


6. Svo er bara að skera niður avókadó, þvo kálið og raða salatinu fallega uppá disk eða í skál. Ég setti það í þessari röð:

   kál, kjúklingur, avókadó, perur, fræ úr einu granatepli, möndlur og að lokum sneiddi ég parmesan ost yfir með ostaskera.



Ég læt fylgja með myndband um hvernig má hreinsa fræin úr granatepli, HÉR  getur þú séð það. Svo er nauðsynlegt að bera þetta fram með góðu brauði.

xox
Emmý