Showing posts with label Ferming. Show all posts
Showing posts with label Ferming. Show all posts

Monday, 12 August 2013

Grænkáls boozt og íspinnar

Ég sá svo fagur grænt og girnilegt lífrænt ræktað grænkál frá Sólheimum í Krónunni að ég varð að búa til boozt, hann var mjög saðsamur og ljúffengur.

Í hann fór:

klakar
1/2 box bláber
1/2 appelsína
1 stórt grænkálsblað
hreinn ananassafi
3 msk vanilluskyr
20 vínber
1 banani

Þetta fyllir auðveldlega þrjú glös

Svo er drekinn minn að fá framtennur, ein komin og næsta á leiðinni.. hann slefar eftir því og klægjar mikið. Því fannst mér tilvalið að gera frostpinna sem að kæla auma góma og ég nýtti  afganga af boozt hráefninu í þessa...


1/2 box bláber
10 vínber
1/2 appelsína
smá grænkál
1 msk skyr
1 msk hreinn ananassafi

Setti þetta í sniðug ísform sem ég fékk í IKEA (uppskriftin passaði akkúrat í 6) og nú bíður þetta inní frysti.

xox
Emmý


Monday, 17 June 2013

Embla

Ég tók síðbúnar fermingar myndir af Emblu vinkonu minni, birtan var eins og best verður á kosið, módelið einstaklega fallegt og þ.a.l er ég ánægð með útkomuna.







Morten bróðir og Katrín Lára vinkona hans voru líka á staðnum, þau búa hlið við hlið og eru svo yndislega krúttlegir og góðir vinir að það hálfa væri nóg. Ég þurfti náttúrulega að mynda þau líka og þau pósuðu eins og þau hefðu aldrei gert neitt annað...


Hoppusyrpa...




Katrín Lára fékk blóm



xox
Emmý




Sunday, 10 March 2013

Fermingarbarn

Litla frænka mín hún Þóra er að fermast núna í vor og kom í smá fermingarmyndatöku til mín í dag, hún er alveg einstaklega falleg og svo er hún líka ótrúlega efnileg fimleikakona












xox
Emmý

Tuesday, 24 January 2012

Heiður fermingarstúlka

Þessar myndir tók ég í sumar af henni Heiði vinkonu minni. 
Hún fermdist í Júlí og var svo ótrúlega sumarleg og sæt...




xox
Emmý