Monday, 5 December 2011

Sinterklaas

Í dag er 5.desember, dagurinn sem Hollendingar halda uppá afmæli Sinterklaas.


Sinterklaas er semsagt jólasveinn.. jólasveinn sem klæðir sig eins og páfinn. HÉR getur þú séð mynd af honum. Sinterklaas er samt ekki í Hollandi allt árið um kring, hann býr sko á Spáni  (don´t ask) með fullt fullt af mönnum (held samt að þeir séu hvorukyn) sem heita Zwarte Piet. eða Svarti Pétur á Íslensku.

Tvær heppnar 

Í Nóvember kemur svo Sinterklaas og allir Svörtu Pétrarnir hans með gufuskipi frá Spáni, honum er tekið fagnandi og hann gefur börnum einu sinni í viku í skóinn þangað til að afmælið sjálft rennur upp, 5.des. Mér finnst þessi saga alltaf jafn skemmtileg en ég held að ég muni aldrei venjast því að sjá mann klæddann eins og páfann koma á gufuskipi til Rotterdam með hundrað svartmálaða menn með sér. En þetta er allt saman gert fyrir börnin og þau hafa gagn og gaman af...

Systurnar stilltar og prúðar fyrr í kvöld. 

Það er kanski gaman að segja frá því að þegar að Demi var 2 ára þá fór hún með mömmu útí búð, einmitt um það leyti sem sinterklaas var að detta í hús. Í búðinni sáu þær svo hörundsdökka konu og Demi kallaði hátt og snjallt "sjáðu mamma, Zwarte Piet" og benti á konuna

Systurnar

Mæðgurnar

Á afmælinu sjálfu þá fer Sinterklaas svo milli húsa með pakka fyrir góðu börnin, hann bankar hátt og snjallt á útidyrahurðina og skilur varninginn eftir á planinu

Demi veit ekkert skemmtilegra


Bjarki heldur mikið uppá Sinterklaas

Sint kaka sem meistari Þóra Jóns gerði

Oma og stelpurnar að skera desertinn

xox
Emmý




Falleg

Ég veit ekkert fallegra en börn og ég veit ekkert skemmtilegra en að mynda börn. Þau eru svo einlæg og fyndin og reyna ekkert að vera sæt fyrir mann, þau bara eru það.
Hér eru nokkrar myndir sem ég hef tekið af börnum sem öll hafa unnið í genalottóinu

Liselotte Hollensk vinkona mín

Dagur Óli frændi minn

Dagur Óli

Stefanía Líf vinkona mín

Stefanía Líf vinkona mín

xox
Emmý

Sunday, 4 December 2011

Ananas & Bláberja Boozt

Mæli með því að þið prufið þennan í fyrramálið, gleymdi að skrifa inná myndina að ég set tvær lúkur af spínati í þennan og þetta ætti að duga rúmlega í tvö glös


xox
Emmý

Kaffihúsablogg

Eg gafst upp á því að reyna að læra heima hjá mér og dró Bjarka með mér niðrí bæ. Hér ætla ég að vera næstu klukkutímana að læra...
Bagels & Beans 

Eitt par á kaffihúsi


xox
Emmý

Saturday, 3 December 2011

Stúdína

Dísa útskrifaðist í júlí 2010, að sjálfsögðu voru teknar nokkrar myndir af rauðhærðasta og fallegasta Íslendingnum








xox
Emmý

Kvöldmatur á Vegelins

Það var tilraunastarfsemi í eldhúsinu á Vegelins í kvöld, fór útí búð áðan og var ekki almenninlega búin að ákveða hvað ég ætlaði að elda, hér er góssið sem kom með heim


1 rauð papríka
1 græn papríka
1 stór rauðlaukur
1 box kirsuberjatómatar
200 gr langar grænar baunir
75 gr baunaspírur
250 gr kjúklingur
pestó
rucola
parmesan ostur
spaghetti

Papríkur í jólalitum

Þessar sítrónur koma málinu ekkert við en mér fannst þær svo girnilegar

Skar niður papríkur og hálfann rauðlauk, bætti við 12 tómötum. Kryddaði með cayenne pipar og smá salti.Setti þetta inní 190°heitann ofn í sirca 15 mín. eða þangað til að þetta leit svona út..

Grænmetið eftir korter í ofninum
Á þessum tímapunkti sauð ég spaghettíið

Steikti smá hvítlauk, restina af rauðlauknum og baunirnar uppúr olíu og smá smjöri

Bætti við baunaspírunum og steikti í nokkrar mínútur

Ofnbakaða grænmetinu bætt við

Kjúklingurinn steiktur uppúr olíu, salti, pipar og 3 tsk af rauðu pestó

Restin af tómötunum og smá rucola skorið

Öllu blandað saman

Svaka fínt


Að sjálfsögðu borið fram með parmesan osti

Og prinsinn á Vegelins sáttur


 Ég nenni ómögulega að læra í kvöld þannig að það gæti vel verið að ég bloggi aftur. 
Vil taka það fram að þetta blogg verður ekki einungis matarblogg, ég á bara lager af matarmyndum í tölvunni sem ég ætla að klára að bomba hér inn sem fyrst.

xox
Emmý


Desember

Þóra Jóns, spinning kennari, skreytingameistari og móðir mín 
er að sjálfsögðu búin að henda upp jólatréi og jólaskrauti. 

Dúllujól á Burgemeester 


Í kvöld verður svo tilraunastarfsemi í eldhúsinu á Vegelins.. stay tuned

xox
Emmý